Já ég er í vinnunni einsog alltaf en ótrúlegt en satt þá er þetta síðasta vinnuhelgin mín.... ég hef hugsað mér að fara að ráðum ljósunnar minnar og læra að slaka á. Samkvæmt hennar bókum þá þykir það mikil vinna fyrir ólétta konu að vera í 120% vinnu að lágmarki plús það að vera með aukakennslu og bara svona almennt að vera að gera eitthvað annað einsog vera á námskeiði, flísaleggja baðherbergi ofl

Ég verð nú að viðurkenna að mér finnst svo sem allt íl agi að minnka aðeins vinnuna því það er orðin breyting finnst mér á nánast á hverjum degi s.s. í þá áttina að ég er orðin feitari og latari
En já með barnalandssiðuna hún verður virkjuð núna um helgina, ég var búin að trassa það að borga ársgjaldið og þess vegna er ekkert hægt að skoða hana en því verður reddað bara sennilega núna á eftir.
Við erum loksins farin að undirbúa komu barnsins eitthvað að ráði og ég tók síðustu helgi alveg í það að þvo öll fötin sem við erum komin með, einnig fórum við að versla og keyptum svon sitt litið af hverju sem var geggjað gaman

Svo núna í vikunni þá keyptum við barnabílstólinn og hann er geggjað flottur alveg í stíl við bílinn

svartur og rauður, graco stóll með base. Svo er stefnt á það að sækja fullt af dóti vestur um páskana og reyna að vera klár með allt saman því nú er farið að styttast mjög í þetta þar sem kellingin verður komin 35 vikur á leið á þriðjudaginn í næstu viku

svo þá eru 3-7 vikur í þetta en ég vona innilega að það verði nær 3 vikunum heldur en hitt

við erum bæði orðin svo spennt og hlökkum mikið til að spreyta okkur á foreldrahlutverkinu

Annars er frekar lítið í fréttum ég er í vinnunni og þar gerist mest lítið og svo kem ég heim og þá er bara þetta venjulega taka til, elda, horfa á tv og lesa eða eitthvað þannig

Við fórum reyndra í keilu á miðvikudaginn og það var alveg geggjað gaman, ég skíttapaði fyrir Badda og Binna og náði að fljúga á hausinn í fyrsta skiptið sem ég átti að gera

náði einhvern vegin að stíga á skálmarnar á buxunum mínum og fljúga beint á rassinn/hliðina

geggjað flott move

en þá kom í ljós herramennskan á staðnum þar sem enginn ekki einu sinni maðurinn minn stóðu á fætur til að athuga með mann

uppeldið greinilega eitthvað að klikka hjá mér

en Baddi bróðir fékk þó prik því hann allavega var farinn að setja sig í stellingarnar til að standa á fætur þegar kellingin rauk á lappirnar með auma bumbu og sært egó

Ég get ekki beðið eftir ´páskunum með sitt 5 daga frí og fullt af nammi

ég er búin að kaupa mér egg númer 6 og er búin að vera í páskaeggjasmökkun reglulega síðan þau komu í búðirnar en með smá aðstoð er ég nú þegar búin að stúta 2 eggjum númer 4 og sennilega um 6 eggjum númer 1 og einu númer 2

maður verður nú að vera viss um gæðin á þessu

En já ég ætla að fara og prufa að opna þessa barnalandssíðu mína og hver veit nema ég setji inn bumbumyndir í kvöld

þið verðið bara að lita framhjá því að ég er orðin slitin gömul kona í fyllstu merkingu. Ég verð samt að segja eitt að lokum sem lýsir því sennilega mjög vel hve maður er í raun brenglaður í sjálfsmynd en maður er alltaf að hrofa á sig í spegli og bölva sínum göllum og fellingum en þegar ég horfi á mig í dag þá finnst mér ég aldrei hafa litið jafnvel út

er mjög ánægð með vöxtinn og bumbuna mína... það eina sem mér sárnar er hvað húðin á mer hefur tekið þessu illa og því er ég orðin einsog ég sagði áðan ansi slitin